Snæland Grímsson ehf.
– traust og rótgróið fyrirtæki í ferðaþjónustu



Snæland Grímsson ehf. er rótgróið fyrirtæki í íslenskri ferðaþjónustu. Fyrirtækið var stofnað af Snæland Grímssyni og fjölskyldu hans árið 1950 og hefur alla tíð síðan lagt áherslu á persónulega þjónustu sem byggð er á áratuga reynslu og þekkingu á íslenskri ferðaþjónustu.

Íslensk ferðaþjónusta hefur breyst mikið á undanförnum árum. Sífellt fleiri ferðamenn heimsækja Ísland ár hvert. Fyrirtæki í ferðaþjónustu þurfa því að bregðast við sífellt auknum kröfum ferðamanna um fjölbreyttari ferðir og afþreyingu allan ársins hring. Snæland Grímsson ehf. hefur í þessu ölduróti breytinga ávallt haft að leiðarljósi að setja viðskiptavininn í öndvegi með úrvali ferða sem sniðnar eru að óskum þeirra og væntingum.

Snæland Grímsson ehf. er enn í dag rekið sem fjölskyldufyrirtæki og starfar með völdum íslenskum ferðaþjónustuaðilum og á auk þess í samstarfi við margar af helstu ferðaskrifstofum Evrópu. Stærð fyrirtækisins gefur því sveigjanleika til að sníða þjónustu þess að þörfum og óskum viðskiptavina og klæðskerasauma lengri og skemmri ferðir að óskum hvers og eins.

Skemmtilegar ferðir sniðnar að þínum óskum
Snæland Grímsson ehf. býður viðskiptavinum sínum upp á fjölbreytt úrval skemmri og lengri ferða fyrir hópa af öllum stærðum; ferðir sem innihalda blöndu af fróðleik, skemmtun og ævintýrum, hestaferð, hvalaskoðun eða ógleymanlega ferð út í óvissuna. Við önnumst allan undirbúning og skipulagningu og kappkostum að því að gera ferðina ógleymanlega – fyrir þig!

Vinnan, kórinn, kvenfélagið eða knattspyrnan?
Langar þig að gera þér glaðan dag með vinnufélögunum, bekkjarfélögunum, kvenfélaginu eða kirkjukórnum? Við getum hjálpað þér að skipuleggja ógleymanlega ævintýraferð út í óvissuna þar sem saman fer skemmtun og allt það besta í mat og drykk. Komdu til okkar með hugmyndir þínar og við munum hjálpa þér eins og kostur er við allan undirbúninginn. Hafðu samband!

snaeland@snaeland.is